blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

7.04.2004

Útilega og perraskapur

Stefnan var tekin á Álfaskeið með dundur flottann tjaldvagn. Það fylgdi meira að segja tjöldunar-hanskar græunum. Bílstjórinn var sérstaklega stoltur af vagninum og ekki síst fylgigræum! Þetta er ofsalega finn staður og mæli eindreigið með útilegum þangað. Okkar útilega varð kanski ekki eins og við höfðum gert okkur væntingar til en hún var samt sem áður skemmtileg en kanski heldur of lítið um læti. Veltum þvi fyrir okkur þegar við vöknuðum morguninn eftir hvort það væri aldurinn sem væri að færast yfir okkur eða hvort dynurnar í glæsikerrunni væri kanski ekkert voðalega þykkar. Við vorum sem sagt öll 3 gjörsamlega að drepast í bakinu! gamla er enn að drepast.. getur varla hreift sig.. það er enn pína að setja á sig bílbelti, sitja, liggja. .. eða bara hreyfa sig bara almennt! þarf að leigja mér gimp til að laga mig! Þar sem það tókst ekki að vera með læti þarna um kveldið var ákveðið á leiðinni heim að þetta yrði bara tekið út á höfuðborgarsvæðinnu. Uppúr miðnætti hittumst við sem sagt aftur ásamt félögum á nýjum skemmtistað hér í boginni og vorum bara með læti fram eftir morgni 8=) Við mæja vorum sérstaklega töff, sérstaklega þegar við vorum að perrast fyrir myndavélinna. Bið eiganda hennar hér með afsökunnar, þú varst bara á vitlausum stað á vitlausum tima!!! Veit ekki alveg hvað það er með okkur og myndavélagræjur. Við náum alltaf að láta documentera vitleysunna okkar... dísús! En þetta var rosalega gaman að hitta ykkur og eyða tima með ykkur hjónakornin mín, áður en þið farið aftur vestur um haf! bara takk fyrir helginna :-)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home